Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, segist hafa furðuleg áhrif á stuðningsmenn nágranna þeirra í Manchester City.
Hann segist nefnilega breyta þeim í stuðningsmenn Manchester United er hann spjallar við þá.
„Ég hef hitt marga stuðningsmenn City en þeir verða stuðningsmenn United þegar þeir hitta mig," sagði hann við heimasíðu Manchester United en ætla má að hann hafi verið að grínast.
Zlatan byrjaði mjög vel hjá Manchester United en hann hefur dalað undanfarnar vikur og ekki skorað síðan 29. september er hann tryggði Manchester United 1-0 sigur á Zorya í Evrópudeildinni.
Athugasemdir