Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 27. nóvember 2014 14:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti hefur meiri trú á Basel en Liverpool
Ancelotti með eina innanfótar.
Ancelotti með eina innanfótar.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur meiri trú á að Basel komist í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en Liverpool.

Real Madrid er að slátra B-riðlinum með fullt hús stiga en liðið lagði Basel í gærkvöldi. Ancelotti hefur trú á Svisslendingunum.

,,Þeir eru í betra standi en Liverpool í augnablikinu. Þeir eru í mjög góðu líkamlegu ásigkomulagi," sagði Ancelotti.

,,Í augnablikinu er Basel naumlega með yfirhöndina."

,,Þeir náðu að valda okkur vandræðum í seinni hálfleik. Við börðumst aftur á móti vel og unnum þess vegna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner