Brandao, framherji Bastia, var í dag dæmdur í eins mánaðar fangelsi í Frakklandi.
Brandao skallaði Thiago Motta miðjumann PSG eftir leik liðanna í ágúst síðastliðnum.
Brandao skallaði Thiago Motta miðjumann PSG eftir leik liðanna í ágúst síðastliðnum.
Möguleiki er á að Brandao þurfi ekki að sitja inni og fái þess í stað að sinna samfélagsþjónustu.
Brandao var í september dæmdur í sex mánaða bann í frönsku deildinni en auk þess að vera dæmdur í fangelsi í dag þá þarf hann að greiða 20 þúsund evrur í sekt.
Hér að neðan má sjá myndband af þessu ótrúlega atviki.
Athugasemdir