Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. nóvember 2014 18:50
Daníel Freyr Jónsson
Evrópudeildin: Ragnar spilaði í jafnteflisleik
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli rússneska liðsins Krasnodar gegn franska liðinu Lille í Evrópudeildinni í kvöld.

Framherjinn Ari kom Krasnodar yfir á 35. mínútu, en Lille jafnaði með marki Nolan Roux seint í leiknum.

Um var að ræða leik í H-riðli Evrópudeildarinnar og er Krasnodar á botni riðilsins með þrjú stig þegar ein umferð er eftir.

Everton er á toppi riðilsins og leikur í kvöld gegn Wolfsburg. Krasnodar á enga möguleika á að komast áfram á meðan Lille á enn veika von.
Athugasemdir
banner
banner
banner