Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 27. nóvember 2014 20:30
Daníel Freyr Jónsson
Fabregas: Hef aldrei verið að spila jafnvel
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas, leikmaður Chelsea, hefur farið frábærlega af stað með félaginu og segist vera að spila sinn besta fótbolta á ferlinum.

Fabregas gekk í raðir Chelsea frá Barcelona í sumar og hefur hann verið lykilmaður í liði þeirra bláklæddu sem enn hafa ekki tapað leik á tímabilinu.

,,Ég man ekki eftir því að hafa spilað svona vel og notið þess jafn mikið að spila fótbolta," sagði spænski miðjumaðurinn.

,,Ég er ekki að segja að WBA og Schalke séu bestu liðin sem ég hef spilað gegn, en þetta voru leikir sem mér fannst gaman að spila. Mér finnst að akkurat núna sé ég að spila besta fótboltann á ferli mínum."

Fabregas segist hafa komið til Chelsea til að vinna titla og að hann hafi haft trú á félaginu.

,,Þegar ég valdi þessa áskorun var það vegna þess að ég hafði trú á að þetta myndi gerast, en ég kom ekki bara til að spila vel. Ég kom til að vinna titla og ef ég gæti notið mín á meðan, þá væri það enn betra."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner