Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 27. nóvember 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Leicester ætlar ekki að semja við Heskey
Heskey er ekki á leið til Leicester á nýjan leik.
Heskey er ekki á leið til Leicester á nýjan leik.
Mynd: Getty Images
Nigel Pearson, stjóri Leicester, segir að Emile Heskey sé ekki lausnin í sóknar vandræðum liðsins.

Hinn 36 ára gamli Heskey hefur verið án félags síðan hann hætti að spila í áströlsku deildinni í apríl.

Heskey ólst upp hjá Leicester og spilaði með aðalliði félagsins í sex ár áður en hann samdi við Liverpool um áramótin.

Fyrr í vikunni lýsti Heskey því yfir að hann vildi semja við Leicester á nýjan leik en Pearson hefur engan áhuga á því.

,,Það er of mikið sagt að hann myndi bæta það sem við höfum hér til staðar í augnablikinu," sagði Pearson í dag.
Athugasemdir
banner
banner