Xherdan Shaqiri má yfirgefa Bayern München í janúar samkvæmt Franz Beckenbauer, forseta Bayern.
Shaqiri kom til Bayern frá Basel fyrir rúmlega tveimur árum en hefur ekki náð að festa sig í sessi í sterku byrjunarliði Þýskalandsmeistaranna.
Shaqiri kom til Bayern frá Basel fyrir rúmlega tveimur árum en hefur ekki náð að festa sig í sessi í sterku byrjunarliði Þýskalandsmeistaranna.
,,Bayern er þegar búið að láta hann vita að hann getur farið í janúarglugganum ef hann vill," sagði Beckenbauer við þýsku sjónvarpsstöðina Sport1.
,,Mér finnst það synd að hann vilji fara vegna þess að hann hefur gífurlega hæfileika."
Liverpool reyndi að kaupa Shaqiri í sumar en tókst ekki vegna þess að Bayern vildi ekki leyfa Svisslendingnum að yfirgefa félagið.
Athugasemdir