Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. nóvember 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Taarabt ennþá of þungur
Taarabt borðar vel og mikið.
Taarabt borðar vel og mikið.
Mynd: Getty Images
Harry Redknpapp, stjóri QPR, segir að langt sé í að Adel Taarabt komist í almennilegt form.

Taarabt hefur ekkert spilað síðan í byrjun október en Redknapp gagnrýndi holdafar hans harðlega fyrr á tímabilinu.

Taarabt svaraði þá fyrir sig og sagðist ekki vera feitur. Marokkómaðurinn hefur verið frá keppni að undanförnu vegna meiðsla og Redknapp segir langt í endurkomu hjá honum.

,,Adel er ekki ennþá kominn í form," sagði Redknapp í dag.

,,Hann er ekki að æfa. Hann hefur verið frá keppni í talsverðan tíma. Hann er langt frá því að vera í formi."
Athugasemdir
banner
banner
banner