Raphael Varane verður frá næstu þrjár vikurnar hið minnsta vegna meiðsla sem hann hlaut í leik gegn Shakhtar Donetsk í vikunni.
Eins og áður hefur komið fram mun Sergio Ramos ekki leika meira á þessu ári vegna meiðsla og því ljóst að Madridingar verða án þessara tveggja varnarmanna í næstu leikjum.
Varane er meiddur í hægra læri en þessi 22 ára gamli Frakki hefur verið í lykilhlutverki hjá Real Madrid á þessu tímabili.
Real Madrid heimsækir Eibar í La Liga á sunnudag og verður spennandi að sjá hvernig liðinu tekst til án Ramos og Varane þar sem liðið hefur fengið á sig sjö mörk í síðustu tveim leikjum.
Athugasemdir