Brasilíumaðurinn Alex Teixeira, leikmaður Shakhtar Donetsk, er eftirsóttur að eigin sögn.
Teixeira, sem er 25 ára gamall, hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu og hefur skorað 23 mörk í 23 leikjum með Shakhtar í öllum keppnum.
„Mig dreymir um að spila á Englandi. Ég hef talað við marga sem segja að það sé besta deild í heimi og ég væri til í að prófa að spila þar.”
„Mér er sagt að Chelsea, Juventus og PSG hafi gert tilboð en við sjáum til hvað gerist. Þetta eru þrjú risafélög og ég verð ánægður sama hvert ég fer”, segir Teixeira.
Athugasemdir