fös 27. nóvember 2015 13:08
Magnús Már Einarsson
Eiður Aron á leið til Þýskalands
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Aron Sigurbjörnsson er að ganga til liðs við félag í þýsku C-deildinni.

Eiður Aron staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en vildi ekki nafngreina liðið að svo stöddu.

Hann mun fara til Þýskalands á mánudag í læknisskoðun og ef ekkert óvænt kemur upp á mun hann skrifa undir eins og hálfs árs samning þar.

Hinn 25 ára gamli Eiður var síðast á mála hjá Örebro í Svíþjóð en samningur hans þar er að renna út.

Örebrö fékk Eið í sínar raðir frá uppeldisfélaginu ÍBV árið 2011 en honum gekk illa að festa sig í sess í liðinu til að byrja með.

Eiður fór aftur til ÍBV á láni 2013 og 2014 en í fyrra lék hann einnig hluta tímabils með Sandnes Ulf.

Á þessu ári var hinn 25 ára gamli Eiður hins vegar fastamaður í liði Örebro en hann spilaði 28 af 30 leikjum liðsins í sænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner