Einar Orri Einarsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík og mun því taka slaginn með liðinu í 1. deildinni næsta sumar.
Samningur Einars Orra við Keflavík rann út í síðasta mánuði og viðræður um nýjan samning höfðu gengið illa eins og kom fram á Fótbolta.net fyrr í þessari viku.
Samningur Einars Orra við Keflavík rann út í síðasta mánuði og viðræður um nýjan samning höfðu gengið illa eins og kom fram á Fótbolta.net fyrr í þessari viku.
Samningar eru hins vegar í höfn núna og Einar Orri verður áfram hjá Keflavík.
Einar Orri hefur skorað sjö mörk í 142 deildar og bikarleikjum með Keflavík en hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2005.
Þessi 26 ára gamli varnar og miðjumaður hefur leikið með Keflavík allan sinn feril.
Athugasemdir