Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. nóvember 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Líkleg byrjunarlið Tottenham og Chelsea
Alli er í banni.
Alli er í banni.
Mynd: Getty Images
Tottenham fær Chelsea í heimsókn í Lundúnarslag í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á sunnudaginn.

Miðjumaðurinn öflugi Dele Alli verður í leikbanni hjá Tottenham og líklegt er að Ryan Mason taki stöðu hans.

John Terry verður líklega ekki með Chelsea vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn Maccabi Tel Aviv í vikunni.

Kurt Zouma og Gary Cahill spla því líklega saman í hjarta varnarinnar.

Thibaut Courtois og Falcao eru ennþá frá keppni og þá eru Ramires og Loic Remy tæpir.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið að mati The Guardian.
Athugasemdir
banner
banner
banner