Luis Enrique, stjóri Barcelona, segir að hann muni skoða möguleikann á að bæta við leikmönnum til liðsins þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Aleix Vidal og Arda Turan verða löglegir með Börsungum á nýju ári þar sem félagaskiptabanninu verður aflétt um áramótið. Þrátt fyrir það og frábært gengi Barcelona útilokar Enrique ekki að versla meira.
„Ég er alltaf að leitast eftir því að endurbæta liðið. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Það eru alltaf einhverjir hlutir sem má fínstilla.”
„Við munum ræða þessi mál frekar þegar janúar nálgast”, segir Enrique.
Athugasemdir