Hollenska goðsögnin Clarence Seedorf hyggst leggja þjálfun fyrir sig á næstu árum og segir drauminn vera að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég á í sérstöku sambandi við enska fótboltann. Ég var mjög nálægt því að fara þangað, oft á mínum á ferli."
„Það gerðist aldrei en það væri frábært að fá að þjálfa í Englandi og upplifa enska fótboltann og stuðningsmennina þar í hverri viku", er meðal þess sem Seedorf segir í ítarlegu viðtali við BBC.
Seedorf á magnaðan leikmannaferil að baki en hann vann til fjölda titla með Ajax, Real Madrid og AC Milan.
Hann stýrði AC Milan í stuttan tíma á síðasta ári en það er hans eina starf í þjálfun hingað til.
Athugasemdir