Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 27. nóvember 2015 21:30
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Markalaust hjá Darmstadt og Köln
Það var ekkert að frétta hjá þessum í kvöld
Það var ekkert að frétta hjá þessum í kvöld
Mynd: Getty Images
Darmstadt 0 - 0 Köln

Einn leikur fór fram í þýsku Bundesligunni í kvöld þegar nýliðar Darmstadt fengu Köln í heimsókn í fyrsta leik fjórtándu umferðar.

17 þúsund áhorfendur mættu til að berja leikinn augum og fengu vægast sagt lítið fyrir peninginn.

Ekkert mark var skorað og tókst heimamönnum ekki einu sinni að ná skoti á mark andstæðinganna.

Köln er í áttunda sæti með 20 stig en Darmstadt hefur 15 stig í tólfta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner