Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2015 18:00
Elvar Geir Magnússon
Vermaelen: Frábær andi í klefanum
Thomas Vermaelen.
Thomas Vermaelen.
Mynd: Getty Images
Thomas Vermaelen, leikmaður Barcelona, telur að frábær andi í klefanum sé lykillinn að enn betri spilamennsku Börsunga að undanförnu.

Barcelona er ósigrað í níu leikjum og hefur farið á kostum síðustu tvo leiki.

„Mér líður vel og allt gengur að óskum, bæði persónulega og hjá liðinu," sagði Vermaelen við Marca.

„Það er frábær andi meðal leikmanna í klefanum. Við stöndum allir saman sem lið og það hjálpar okkur þegar það koma erfiðir tímar."

Barcelona vann 4-0 útisigur á Real Madrid í El Clasico um síðustu helgi.

„Fyrir stuðningsmenn okkar var mjög mikilvægt að gera vel. Andrúmsloftið á vellinum var ótrúlegt þó ég hafi upplifað það sem varamaður. Það verður talað um þennan leik í mörg ár, ég held að hann fari í sögubækurnar," sagði Vermaelen.
Athugasemdir
banner
banner
banner