Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. nóvember 2015 22:30
Arnar Geir Halldórsson
Vidal: Bayern er miklu betra en Juventus
Kampakátur með sitt nýja félag
Kampakátur með sitt nýja félag
Mynd: Getty Images
Sílemaðurinn Arturo Vidal er ekki í nokkrum vafa um að hann sé á betri stað núna en á síðustu leiktíð.

Vidal lék lykilhlutverk á miðju Juventus í fyrra þegar liðið vann tvöfalt á Ítalíu og tapaði í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fyrir Barcelona.

Vidal ákvað að söðla um og færa sig til þýska stórliðsins Bayern Munchen.

„Í dag er Bayern Munchen klárlega mun öflugra lið en Juventus þó þeir séu enn frábært lið.”

„Bestu leikmenn heims eru hérna og ég vonast til að geta hjálpað þeim.”

„Ég er mjög ánægður hérna. Ég er hluti af framúrskarandi hópi og vonast til að vinna titla hérna”,
segir Vidal.

Athugasemdir
banner
banner
banner