Víkingur R. hafði betur gegn KR í Bose mótinu í kvöld, með þremur mörkum gegn einu.
Úrslitin koma mörgum á óvart, þó að hér sé aðeins verið að ræða um æfingamót, eftir 8-1 tap Víkinga gegn Blikum í fyrstu umferð.
Úrslitin koma mörgum á óvart, þó að hér sé aðeins verið að ræða um æfingamót, eftir 8-1 tap Víkinga gegn Blikum í fyrstu umferð.
„Við lögðum okkur fram í dag og vorum mjög skipulagðir, það var það sem að breytti hlutunum hjá okkur. Ég er virkilega ánægður með framlag allra," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga.
Táningurinn Örvar Eggertsson gerði annað mark Víkinga í leiknum og þurfti að flytja hann upp á sjúkrahús eftir harkalegt samstuð í leiknum. Líklegt er að hann hafi fengið heilahristing.
Logi er ánægður með nýju leikmenn liðsins og hljómar spenntur fyrir Gunnlaugi Hlyni Birgissyni. Þá er Patrik Snær Atlason, leikmaður Víðis, að æfa með félaginu og skoraði hann sigurmarkið á 89. mínútu í kvöld.
„Mér leist mjög vel á leikmennina. Sindri stendur sig vel og við erum búnir að ganga frá samkomulagi við Gunnlaug. Svo eru Patti og Halldór að æfa með okkur. Patti tryggði sigurinn."
Athugasemdir