Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 27. desember 2014 13:15
Arnar Geir Halldórsson
Áhugi frá Belgíu og Hollandi á Jóni Daða
Jón Daði Böðvarsson
Jón Daði Böðvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði Böðvarsson var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi meðal annars draumabyrjun sína með A-landsliðinu.

Jón Daði leikur með Íslendingaliðinu Viking Stavanger í norsku úrvalsdeildinni en stefnir hærra. Aðspurður um hvort eitthvað væri í spilunum með félagsskipti í janúar sagðist Jón Daði vita af áhuga úr stærri deildum.

,,Ég hef heyrt af áhuga frá Belgíu og Hollandi en ég veit ekkert hvaða lið það eru. Ég held að það komi bara í ljós í janúar. Ég fer samt ekki í hvaða lið sem er. Það verður að vera lið sem hentar mínum leiksstíl" sagði Jón Daði.

,,Eins og staðan er í dag er ég leikmaður Viking og á ár eftir af samningi mínum þar. Mér var boðinn nýr samningur en ég sagðist vilja taka mér tíma og bíða með að svara því. Þeir virða það."

Upptaka af viðtalinu í heild kemur inn á síðuna á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner