Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. desember 2014 17:47
Magnús Már Einarsson
Brendan Rodgers: Gylfi er fæddur markaskorari
Gylfi og Bony hafa náð vel saman í vetur.
Gylfi og Bony hafa náð vel saman í vetur.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, talaði um Gylfa Þór Sigurðsson á fréttamannafundi í dag. Rodgers þekkir Gylfa frá fyrri tíð bæði hjá Reading og Swansea en þeir munu hittast á mánudagskvöld þegar Swansea heimsækir Liverpool.

,,Gylfi er ungur leikmaður sem ég setti inn í liðið þegar ég var stjóri Reading," sagði Rodgers.

,,Ég fékk hann síðan á láni til Swansea þegar ég var stjóri þar. Hann stóð sig frábærlega frá janúar og út tímabilið þegar við vorum saman í úrvalsdeildinni."

,,Hann er fæddur markaskorari, þú getur séð það með landsliðinu. Samvinna Bony og Sigurðsson er ein sú besta í deildinni, þeir passa mjög vel saman og vilja báðir skora mörk."

Athugasemdir
banner
banner