Marko Marin á ekki sjö dagana sæla þessi misserin en dvöl hans hjá Fiorentina hefur síður en svo reynst happadrjúg.
Þessi þýski kantmaður var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu en hann er í eigu Chelsea sem gerði fimm ára samning við kappann árið 2012.
Eftir að hafa eytt síðasta tímabili á láni hjá Sevilla var Marin lánaður til Fiorentina fyrir þetta tímabil en hann hefur ekki fengið eina mínútu í Serie A í vetur þrátt fyrir að hafa skorað 2 mörk í 4 leikjum í Evrópudeildinni.
Vincenzo Montella, stjóri Fiorentina, er sagður vilja losna við Marin úr hópnum í janúar en ólíklegt verður að teljast að Marin eigi afturkvæmt á Stamford Bridge.
Athugasemdir