Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   lau 27. desember 2014 22:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Harry Kane: Tottenham er að berjast um meistaradeildarsæti
Harry Kane hefur spilað afar vel á leiktíðinni.
Harry Kane hefur spilað afar vel á leiktíðinni.
Mynd: Getty Images
Harry Kane, sóknarmaður Tottenham segir að liðið sé að berjast um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Liðið vann sinn þriðja leik í röð í gær en þá sigruðu þeir Leicester 2-1.

Tottenham er nú aðeins tveimur stigum frá fjórða sætinu. Kane skoraði sjálfur fyrsta mark leiksins áður en Leonardo Ulloa jafnaði leikinn. Það var síðan Christian Eriksen sem tryggði Tottenham stigin þrjú með fallegu marki beint úr aukaspyrnu.

,,Við erum að spila vel," sagði Kane eftir að hafa skorað 15. mark sitt á leiktíðinni. ,,Eftir að þeir skoruðu, þá vöknuðum við til lífsins og bjuggum til færi og Eriksen skoraði frábært mark.

,,Hann er toppleikmaður. Hann er búinn að vera frábær eins og liðið í heild. Við gerðum það sem við þurftum að gera."

,,Við höfum verið að spila betur á síðustu vikum og ég held við getum náð topp fjórum ef við höldum áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner