Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, hefur staðfest að Hugo Lloris verði klár í slaginn í hádeginu á morgun þegar Man Utd mætir í heimsókn.
Lloris meiddist undir lok leiksins í gær þegar Tottenham vann Leicester 2-1. Jamie Vardy fór þá heldur harkalega í Frakkann og blæddi mikið úr munni hans.
,,Hugo (Lloris) fékk högg á andlitið en hann er í lagi. Hann er með skurð í munninum en það verður ekkert vandamál gegn Man Utd." sagði Pochettino.
Lloris varð fyrir höfuðhöggi í leik gegn Everton á síðustu leiktíð þar sem hann neitaði að fara af velli í kjölfarið. Pochettino segir það ekki hafa áhrif á hann.
,,Hann óttast ekkert í þessum aðstæðum og við vitum að hann er einn besti markvörður heims." sagði Argentínumaðurinn brattur.
Athugasemdir