Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. desember 2014 08:00
Elvar Geir Magnússon
James Milner lék Boring James Milner
Milner virðist meiri húmoristi en menn halda.
Milner virðist meiri húmoristi en menn halda.
Mynd: Getty Images
James Milner, leikmaður Manchester City, er af mörgum talinn mjög þurr og leiðinlegur persónuleiki og er þekktur fyrir að gefa afar óspennandi viðtöl.

Mikið grín er gert að Milner á Twitter þar sem stofnaður var 'Boring James Milner' (eða Leiðinlegi James Milner) aðgangur sem notið hefur mikilla vinsælda og mörg hundrað manns sem fylgja honum.

Nú rétt fyrir jólin sýndi Milner þó að hann er svo sannarlega með húmor þegar hann brá sér í hlutverk 'Leiðinlega Milner' að opna jólagjafir. Hægt er að sjá það í myndbandinu hér að neðan.

Innan vallar hefur Milner leikið mjög vel á þessu tímabili, núgildandi samningur hans rennur út í sumar og segja enskir fjölmiðlar að Arsenal og Liverpool ætli að reyna allt til að krækja í Milner á frjálsri sölu.

Hjá Manchester City anda menn þó rólega og búast við því að Milner muni samþykkja nýjan samning við félagið bráðlega.


Athugasemdir
banner
banner
banner