Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. desember 2014 10:09
Magnús Már Einarsson
Jamie Redknapp: Matic getur orðið betri en Makelele
Nemanja Matic.
Nemanja Matic.
Mynd: Getty Images
Jamie Redknapp, sparkspekingur hjá Sky, telur að Nemanja Matic geti orðið betri leikmaður fyrir Chelsea en Claude Makelele var á sínum tíma.

Matic hefur verið frábær aftarlega á miðjunni hjá Chelsea á þessu tímabili.

,,Það hlýtur að vera draumur fyrir John Terry og Gary Cahill þegar hann spilar fyrir framan þá því að hann er fullkominn skjöldur fyrir vörnina. Hann situr fyrir framan vörnina og verndar hana," sagði Redknapp.

,,Ég man þegar ég spilaði gegn Makelele og taldi að hann væri besti varnarsinnaði miðjumaður sem ég hef séð en ef Matic heldur svona áfram gæti hann farið fram úr honum."

,,Þessi náungi er með frábæran vinstri fót, hann er alltaf með höfuðið uppi og virðist alltaf hafa tíma á boltann. Hann er mun betri leikmaður en fólk vill meina."

Athugasemdir
banner
banner
banner