Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. desember 2014 09:41
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Jón Daði og Alfreð Finnboga í útvarpinu í dag
Einnig farið yfir jólatörnina í enska boltanum
Landsliðsmenn koma í heimsókn.
Landsliðsmenn koma í heimsókn.
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í sannkölluðu hátíðarskapi í dag en hann verður á X-inu milli 12 og 14 eins og alla laugardaga (já það er laugardagur í dag!).

Báðir gestir þáttarins eru landsliðsmenn. Fyrri gesturinn er Jón Daði Böðvarsson sem sló ræklilega í gegn með landsliðinu á árinu.

Síðar í þættinum kemur svo Alfreð Finnbogason sem varð markakóngur í Hollandi á árinu en hann gekk svo í raðir spænska úrvalsdeildarliðsins Real Sociedad.

Í þættinum verður einnig farið yfir jólatörnina í enska boltanum en umsjónarmenn eru Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner