Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að John Terry fyrirliði liðsins sé jafn öflugur í dag og hann var fyrir tíu árum síðan.
Hinn 34 ára gamli Terry skoraði fyrra mark Chelsea í 2-0 sigri á West Ham í gær.
,,Hann er fullur sjálfstrausts. Ég sé minn John frá 2004, 05 og 06. Ég sé engan mun," sagði Mourinho.
Hinn 34 ára gamli Terry skoraði fyrra mark Chelsea í 2-0 sigri á West Ham í gær.
,,Hann er fullur sjálfstrausts. Ég sé minn John frá 2004, 05 og 06. Ég sé engan mun," sagði Mourinho.
,,Eini munurinn sem ég sé er þegar tvíburarnir hans koma á æfingasvæðið."
,,Þeir fæddust fyrir tíu árum en núna eru þeir að hlaupa og sparka í bolta."
Athugasemdir