lau 27. desember 2014 16:15
Arnar Geir Halldórsson
Sjónvarpsstöð AC Milan segir skiptin á Torres og Cerci frágengin
Torres er á leiðinni heim
Torres er á leiðinni heim
Mynd: Getty Images
Allt útlit er fyrir að Fernando Torres snúi heim á Vicente Calderon í janúar en sjónvarpsstöð AC Milan staðfestir að Alessio Cerci hafi samþykkt tilboð félagsins og munu þeir því skipta um lið þegar félagsskiptaglugginn opnar.

Þessi félagsskipti hafa verið í burðarliðnum undanfarna daga en beðið var eftir því að Cerci myndi velja á milli Mílanóliðanna, AC og Inter. Hann ku nú hafa gert upp hug sinn og því ekkert til fyrirstöðu að Fernando Torres snúi heim.

Atletico Madrid mun taka við lánssamning AC Milan við Chelsea en 18 mánuðir eru eftir af honum.

Torres skoraði aðeins eitt mark á ferli sínum hjá AC Milan á meðan Alessio Cerci tókst ekki að finna sig hjá Spánarmeisturunum og eyddi mestöllum tíma sínum þar á varamannabekknum.
Athugasemdir
banner
banner