Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 27. desember 2014 14:11
Arnar Geir Halldórsson
Wayne Rooney trúir því að Man Utd geti náð 1.sæti
Wayne Rooney
Wayne Rooney
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney hefur spilað frábærlega fyrir Manchester United sem hefur gengið vel upp á síðkastið. Liðið er þó 10 stigum á eftir toppliði Chelsea en Rooney trúir því að liðið geti náð 1.sæti.

,,Það er mikið eftir, við vitum það. Við höfum unnið niður forskot áður og við höfum líka tapað niður miklu forskoti svo það getur allt gerst. Næstu vikur verða mikilvægar, það eru margir leikir og ef við náum réttum úrslitum getum við komið okkur í góða stöðu." sagði Rooney.

Rooney sem er fyrirliði Man Utd hefur verið að spila á miðjunni, eitthvað sem talið var að hann hefði verið ósáttur með í stjóratíð Ferguson. Kappinn virðist hinsvegar njóta sín sem aldrei fyrr en hann var magnaður í 3-1 sigri Man Utd á Newcastle í gær þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

,,Ég hef spilað þessa stöðu oft áður og það er ekkert vandamál. Stjórinn hefur gefið mér leyfi til að sækja meira og ég er ánægður." sagði Rooney að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner