,,Ég get ekki séð sjálfan mig spila með Manchester United," sagði Gareth Bale leikmaður Real Madrid í viðtali við Cadena Ser á Spáni í gær.
Orðrómur hefur verið um að Manchester United ætli að punga út 120 milljónum punda til að fá Bale aftur í enska boltann.
Orðrómur hefur verið um að Manchester United ætli að punga út 120 milljónum punda til að fá Bale aftur í enska boltann.
,,Í viðtali nýlega var ég spurður að því hvort ég væri óánægður hjá Real og ég sagðist vera mjög ánægður hér."
,,Ég á nokkur ár eftir af samningi mínum og ég er að njóta þess að spila fótbolta. Við erum að vinna titla og ég vil halda áfram þessari vinnu hjá Real."
Bale skrifaði undir sex ára samning við Real Madrid þegar hann kom til félagsins frá Tottenham sumarið 2013.
Athugasemdir