Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. janúar 2015 10:00
Alexander Freyr Tamimi
Fabregas tæpur fyrir leikinn gegn Man City
Fabregas fer hér meiddur af velli.
Fabregas fer hér meiddur af velli.
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas, miðjumaður Chelsea, gæti misst af hinum gríðarlega mikilvæga titilslag gegn Manchester City um helgina.

Spænski landsliðsmaðurinn meiddist í 1-0 sigri Chelsea gegn Liverpool í undanúrslitum deildabikarsins í gær eftir að hann skall saman við John Terry. Var hann tekinn af velli snemma í seinni hálfleik.

Jose Mourinho ákvað umsvifalaust að skipta Fabregas af velli eftir áreksturinn, en nú er þátttaka hans gegn City á laugardag í óvissu.

Mourinho vildi ekki tjá sig um alvarleika meiðslanna, en Fabregas hefur verið alger lykilmaður í liði Chelsea og lagt upp 15 mörk í 21 deildarleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner