Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. janúar 2015 18:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða Þórs 
Fjölmiðlaaðstaða á Þórsvelli eyðilagðist
Mynd: Þór
Talsvert tjón varð í vikunni þegar gámar sem hýsa aðstöðu fyrir sjónvarps- og útvarpsútsendingar á Þórsvelli á Akureyri fuku um koll.

Gámarnir sem eru tveir fuku á hliðina og er ljóst að efri gámurinn sem hýsti aðstöðu fyrir fjölmiðafólk er ónýtur en óvist er með skemmdir á neðri gámnum.

Eiður Arnar Pálmason sagði í samtali við heimasíðu Þórs að hann gæti ekki sagt til um hvert tjónið sé þar sem enn á eftir að meta það.

Þór féll úr Pepsi-deildinni í fyrra og leikur í 1. deild á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner