Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 28. janúar 2015 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Juventus sló Parma úr bikarnum
Alvaro Morata skoraði sigurmarkið.
Alvaro Morata skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
Parma 0 - 1 Juventus
0-1 Alvaro Morata ('89)

Botnlið Parma fékk topplið Juventus í heimsókn í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins.

Juventus stjórnaði leiknum en heimamenn voru fastir fyrir í vörn og var staðan markalaus þar til á lokamínútum leiksins.

Alvaro Morata skoraði sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma eftir góða stoðsendingu frá Fernando Llorente.

Juventus mætir annað hvort Roma eða Fiorentina í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner