Liverpool er að íhuga að kaupa hinn unga Demarai Gray frá Birmingham í janúarglugganum.
Gray er 18 ára gamall og þykir einn efnilegasti leikmaður Englands og ku hann vera á óskalista fjölmargra úrvalsdeildarfélaga.
Gray er 18 ára gamall og þykir einn efnilegasti leikmaður Englands og ku hann vera á óskalista fjölmargra úrvalsdeildarfélaga.
Liverpool hefur forkaupsrétt á unglingalandsliðsvarnarmanninum og á rétt á að jafna öll tilboð sem í hann verða gerð. Þetta er niðurstaða samnings sem gekk í gegn þegar Birmingham fékk Jordon Ibe á láni á síðustu leiktíð.
Gray hefur spilað 23 leiki í öllum keppnum á tímabilinu og skorað fjögur mörk.
Athugasemdir