Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. janúar 2015 12:39
Magnús Már Einarsson
Luis Figo býður sig fram á móti Blatter
Mynd: Getty Images
Luis Figo hefur ákveðið að bjóða sig fram sem forseti FIFA í sumar.

Figo er einn af þeim aðilum sem ætla að bjóða sig fram og reyna að velta Sepp Blatter úr sessi en hann hefur verið forseti FIFA frá því árið 1998.

Figo er margreyndur portúgalskur landsliðsmaður en hann spilaði á sínum tíma með Barcelona, Real Madrid og Inter.

Hinn 42 ára gamli Figo segist ætla að taka á spillingu í knattspyrnuheiminum.

,,Ef þú leitar eftir FIFA á netinu þá er fyrsta orðið sem kemur upp: skandall," sagði Figo í dag.
Athugasemdir
banner
banner