Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 28. janúar 2015 12:24
Magnús Már Einarsson
Mun heimavöllur Real Madrid heita Abu Dhabi Bernabéu?
Real Madrid fagnar marki.
Real Madrid fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Spænska íþróttablaðið AS greinir frá því í dag að Santiago Bernabéu, heimavöllur Real Madrid, muni á næstunni fá nýtt nafn.

Samkvæmt fréttinni á völlurinn að heita Abu Dhabi Bernabéu.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, er sagður hafa rætt hugmyndina við borgaryfirvöld í Madrid.

Fjárfestingahópurinn IPIC frá Abu Dhabi gerði í október samning við Real Madrid og talið er að félagið megi ráða nafninu á leikvangi félagsins.

IPIC mun greiða góða fjárhæð fyrir nafnið á leikvanginum en Real Madrid hefur ekki ennþá viljað staðfesta þessar fréttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner