Fernando Torres hefur átt stórkostlega endurkomu í Atletico Madrid og er búinn að koma liðinu yfir gegn Barcelona í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins.
Torres skoraði eftir 40 sekúndur og er hægt að sjá markið hér fyrir neðan.
Torres skoraði eftir 40 sekúndur og er hægt að sjá markið hér fyrir neðan.
Sóknarmaðurinn var í byrjunarliðinu gegn erkifjendunum í Real Madrid þegar liðin mættust í síðustu umferð bikarsins. Leikurinn var spilaður á Santiago Bernabeu, heimavelli Real.
Torres kom Atletico þá yfir með marki á fyrstu sekúndum leiksins og bætti öðru við á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Núna er sóknarmaðurinn knái búinn að skora annað mark á fyrstu mínútunni.
Athugasemdir