Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. janúar 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
PSG vill fá Adebayor á láni
Mynd: Getty Images
PSG vill fá Emmanuel Adebayor á láni frá Tottenham út þetta tímabil samkvæmt heimildum Sky Sports.

Félögin eru byrjuð að ræða saman með það fyrir augum að ganga frá samningi áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

QPR hefur einnig áhuga á Adebayor en Harry Redknapp stjóri liðsins keypti framherjann til Tottenham á sínum tíma.

Adebayor hefur skorað 42 mörk í 111 leikjum með Tottenham en hann hefur ekki spilað mikið á þessu tímabili eftir að Harry Kane fór að raða inn mörkum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner