Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 28. janúar 2015 17:30
Elvar Geir Magnússon
Tilbúnir að gera De Gea að launahæsta markverðinum
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur boðið David De Gea nýjan samning upp á 120 þúsund pund í vikulaun, sem jafnast á við launin sem Joe Hart fær eftir nýjan samning við Manchester City.

Real Madrid hefur áhuga á að fá De Gea sem hefur farið hamförum í marki United á þessu tímabili.

Mirror segir að United sé tilbúið að bjóða þessum 24 ára Spánverja 140 þúsund pund alls í vikulaun til að halda honum á Old Trafford.

Sagan segir að De Gea muni líklegast skrifa undir nýjan samning til 2020 á næstu dögum en hann á 18 mánuði eftir af núgildandi samningi.

United skrifaði nýlega undir samning við Victor Valdes, fyrrum markvörð Barcelona, sem varamarkvörð De Gea en einnig sem tryggingu ef félagið myndi tapa fyrir Real í baráttnni um De Gea.
Athugasemdir
banner
banner
banner