Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 28. febrúar 2015 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Robben: Neuer tók markvörslur á heimsmælikvarða
Mynd: Getty Images
Arjen Robben, leikmaður Bayern München í Þýskalandi, hrósaði Manuel Neuer, markverði liðsins í hástert eftir leik liðsins gegn Köln.

Bastian Schweinsteiger og Franck Ribery komu Bayern yfir en gestirnir minnkuðu muninn og voru nálægt því að jafna en Manuel Neuer sá við leikmönnum Köln.

Arjen Robben og Robert Lewandowski sáu til þess að klára svo dæmið en Robben hrósaði Neuer.

,,Þetta var skrítið í dag. Við byrjuðum vel en þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þá vorum við slakir," sagði Robben.

,,Manuel Neuer gaf okkur sigurinn. Hann tók margar markvörslur sem voru á heimsmælikvarða," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner