Almeria 0 - 0 Deportivo
Rautt spjald:Thievy Bifouma, Almeria ('55)Michel, Almeria ('90)
Rautt spjald:Thievy Bifouma, Almeria ('55)Michel, Almeria ('90)
Nú rétt í þessu lauk vægast sagt bragðdaufum leik í La Liga.
Almeria fékk Deportivo La Coruna í heimsókn í mikilvægum leik í fallbaráttunni en liðin eru í 15. og 16.sæti.
Gestirnir voru talsvert sterkari aðilinn í leiknum og vænkaðist hagur þeirra til muna þegar einn besti leikmaður Almeria, Thievy Bifouma, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 55.mínútu. Michel, liðsfélagi hans, fór sömu leið í uppbótartíma.
Þrátt fyrir fjöldann allan af marktilraunum tókst hvorugu liðinu þó að finna leið í markið og niðurstaðan markalaust jafntefli.
Athugasemdir