Leiknir vann 3-2 sigur á Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld eftir að Grafarvogsliðið var tveimur mörkum yfir í hálfleik.
„Við sýndum okkar rétta andlit og við leystum pressu Leiknismanna vel í fyrri hálfleik. Við verðum svo værukærir og Leiknismenn komu grimmir í seinni hálfleikinn og snéru dæminu verðskuldað við," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.
„Leiknismenn komu okkur á óvart. Hvernig þeir komu í seinni hálfleikinn."
Ágúst var ánægður með Bandaríkjamanninn Christopher Tsonis sem gekk í raðir félagsins nýlega en hann skoraði annað mark Fjölnis í kvöld.
„Það var frábært að hann næði að opna markareikninginn í fyrsta leik. Það var kraftur í honum."
Fjölnismenn unnu 1. deildina í fyrra og það er spenna fyrir sumarið í Pepsi-deildinni.
„Hópurinn er nokkuð fullmótaður. Við förum erlendis til Spánar í æfingaferð 5. apríl og þá léttum við aðeins lundina og komumst í sól og á gras. Við höfum hreinlega allt að vinna í sumar."
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir