,,Það er ekki létt að koma á þennan völl og ná í þrjú stig," sagði Birkir Bjarnason eftir 3-0 sigur Íslands á Kasakstan í dag.
,,Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik og náðum að láta boltann ganga. Við náðum markinu mjög snemma. Í síðari hálfleik komust þeir aðeins inn í leikinn en við kláruðum þetta að lokum."
,,Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik og náðum að láta boltann ganga. Við náðum markinu mjög snemma. Í síðari hálfleik komust þeir aðeins inn í leikinn en við kláruðum þetta að lokum."
,,Ég er ánægður með alla. Við erum að spila mjög vel og allir eru að leggja sig 100% fram. Eiður er að koma vel inn í þennan hóp með því að dreifa reynslu og ró yfir okkur alla."
Birkir skoraði tvívegis í dag en í síðara markinu fór boltinn af varnarmanni og í netið. ,,My goal" sagði Birkir við dómara leiksins í kjölfarið.
,,Það er mikilvægt að fá þetta mark skráð á sig," sagði Birkir léttur í bragði í viðtalinu.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir