Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 28. mars 2015 17:48
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Astana í Kasakstan
Eiður Smári: Farnir að refsa öðrum fyrir þeirra mistök
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen var vitanlega ánægður eftir 3-0 sigur Íslands á Kasakstan í dag. Eiður spilaði sinn fyrsta landsleik síðan í nóvember árið 2013 og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark síðan árið 2009.

,,Auðvitað er alltaf gaman að skora. Sérstaklega fyrir landsliðið. Það var ansi langt síðan að ég skoraði fyrir landsliðið og þetta var mikið gleðiefni. Þetta var fyrsti leikurinn í langan tíma og þetta var gaman," sagði Eiður Smári Guðjohnsen

Eiður skoraði eftir sendingu frá Jóhanni Berg Guðmundssyni í fyrri hálfleik en markið kom eftir lélegt útspark hjá markverði Kasakstan. Íslendingar refsuðu fyrir það.

,,Það er það sem gerist í fótbolta í hæsta gæðaflokki. Sem betur fer erum við farnir að refsa öðrum fyrir þeirra mistök. Það var margt mjög jákvætt. Það er hægt að setja út á vissa kafla í leiknum sem voru ekki alveg nógu góðir en við vorum að reyna að halda í þetta og klára leikinn í rauninni."

Leikurinn í dag fór fram innandyra á gervigrasi. ,,Það var skemmtileg stemning á vellinum. Þetta var mjög gaman. Það var ekkert óþægilegt við þetta. Loftið var mun ferskara í kvöld heldur en þegar við höfum verið að æfa. Þetta var ekki eins erfitt og maður bjóst við."

,,Við eigum hrós skilið fyrir að hafa verið mjög vel skipulagðir og undirbúið okkur vel með því að lesa í leik þeirra."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner