Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. mars 2015 20:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sterling vonast til að vera klár fyrir leikinn gegn Arsenal
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling býst við að vera klár í slaginn fyrir Liverpool gegn Arsenal næstu helgi en hann mun missa af vináttuleik Englendinga og Ítala á þriðjudag vegna támeiðsla.

Sterling skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir England á föstudaginn í 4-0 sigri á Litháen.

Hinn 20 ára gamli Sterling mun hins vegar ekki ferðast með enska hópnum til Ítalíu en James Milner, Leighton Baines og Danny Welbeck missa einnig af leiknum.

,,Vonandi verð ég klár fyrir Arsenal leikinn. Við verðum að sjá hvernig þetta verður næstu daga. Vonandi verð ég klár."

,,Planið var að spila gegn Litháen og fá síðan sprautu til að létta á meiðslunum. Við sjáum hvað setur," sagði Sterling.
Athugasemdir
banner
banner
banner