Fotbolti.net
28.03.16 - 08:52
Magnús Már Einarsson

Gummi Tóta í Rosenborg (Staðfest)

Guðmundur og Stig Inge Björnebye eftir undirskrift.

Guðmundur og Stig Inge Björnebye eftir undirskrift.

Canon

Mynd: Rosenborg

Rosenborg hefur keypt Guðmund Þórarinsson í sínar raðir frá FC Nordsjælland. Guðmundur skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Rosenborg.
Guðmundur hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands auk þess að eiga þrjá leiki fyrir A-landsliðið, síðast lék hann fyrir landsliðið gegn Bandaríkjunum í janúar.

Guðmundur spilaði áður tvö tímabil með Sarpsborg í Noregi en Rosenborg hefur haft hann lengi í sigtinu.

„Hann þekkir norska fótboltann vel og gefur okkur fleiri möguleika á miðjunni,\" sagði Stig Inge Björnebye, yfirmaður íþróttamála hjá Rosenborg, og fyrrum leikmaður Liverpool.

Rosenborg er ríkjandi Noregsmeistari og stórveldi í Skandinavíu en fyrir hjá félaginu eru tveir Íslendingar; Hólmar Örn Eyjólfsson og Matthías Vilhjálmsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.