„Við áttum flottan leik. Það er alltaf sætast að vinna 1-0 og halda hreinu,"
Kjartan Henry Finnbogason fékk aukaspyrnuna sem Hörður Björgvin Magnússon skoraði sigurmarkið úr.
„Ég hefði bara viljað fara í gegn og skora sjálfur," sagði Kjartan léttur í bragði um aukaspyrnuna.
„Þegar maður spilar fyrir íslenska landsliðið snýst það um vinnusemi og að reyna að halda boltanum. Mér fannst ég geta það ágætlega í dag. Það var plús að fá aukaspyrnuna og hún var frábær hjá Herði. Ég átti allavega einhvern þátt í þessu."

Lestu um leikinn: Írland 0 - 1 Ísland
Ísland sigraði Kosóvó einnig 2-1 í undankeppni HM á föstudaginn.
„Ég sá einhverja umræða um að við værum ekki að spila nógu fallegan fótbolta en okkur er alveg skítsama um það. Við erum að ná úrslitum og það skiptir öllu. Að vinna Írland 1-0 á útivelli er frábært og að vinna Kosóvó á erfiðum útivelli með smá laskað lið, það sýnir styrk. Þetta er búin að vera frábær ferð."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir