„Írar hafa hörkulið og eru sérstaklega sterkir á heimavelli. Þetta voru frábær úrslit," sagði Ólafur Ingi Skúlason, miðjumaður íslenska landsliðsins, eftir sigurinn gegn Írum í kvöld.
Ólafur átti flottan leik, var rólegur og yfirvefaður á miðsvæðinu eins og hans er von og vísa.
Ólafur átti flottan leik, var rólegur og yfirvefaður á miðsvæðinu eins og hans er von og vísa.
Lestu um leikinn: Írland 0 - 1 Ísland
„Þeir sköpuðu sér nánast ekki neitt. Ömmi átti frekar rólegan dag. Við vissum að þeir myndu spila upp vængina og við þyrftum að vera klárir þegar það kæmu krossar. Þar vorum við með yfirhöndina. Við gáfum engin færi á okkur."
„Það var fínt að fá mark á þessum tíma og halda svo fengnum hlut. Við gerðum það bara vel."
Átta breytingar voru á byrjunarliðinu frá síðasta leik en liðsheildin hjá íslenska liðinu var gríðarlega þétt.
„Það er fullt af strákum að koma inn sem eru að taka sín fyrstu skref. Það er mikilvægt fyrir þá að koma inn og vinna. Það er komin sigurhefð hjá liðinu og þetta var frábær sigur þó við hefðum getað haldið boltanum örlítið betur."
Athugasemdir