„Þetta var varnarsigur aftur. Við erum sterkir í vörn, það er okkar helsti eiginleiki og við spilum upp á það," sagði Ragnar Sigurðsson sáttur eftir 1-0 sigur Íslands á Írlandi í kvöld.
Lestu um leikinn: Írland 0 - 1 Ísland
„Við vorum ekki með hópinn sem við erum vanalega með og það voru nokkrir nýir strákar. Ef maður tekur þetta allt saman þá er þetta frábær sigur."
Ísland hefur unnið nokkra vináttuleiki undanfarna mánuði eftir dapurt gengi í slíkum leikjum undanfarin ár.
„Við höfum kannski ekki verið að vinna þá síðustu 4-5 árin en við erum farnir að gera það núna og það er jákvætt."
Ragnar hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum hjá Fulham á þessu ári og óvíst er hversu marga leiki hann fær áður en kemur að leik Íslands og Króatíu í júní.
„Ég gæti lent í smá pásu miðað við hvernig hlutirnir eru búnir að vera hjá mér í Fulham en mér fannst ég sýna í þessum tveimur leikjum að það skiptir engu máli," sagði Raggi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir